Mikill meirihluti er sammála því að dómstólar taki aftur upp Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Þetta er samkvæmt niðurstöðum könnunar sem MMR framkvæmdi á dögunum.
MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort taka ætti svonefnt Guðmundar- og Geirfinnsmál aftur upp af dómstólum.
Af þeim sem tóku afstöðu var mikill meirihluti, eða 82 prósent frekar eða mjög sammála því að Guðmundar- og Geirfinnsmálið yrði tekið upp aftur. Þar af voru 54,7 prósent mjög sammála því og 27,3 prósent frekar sammála því. Aftur á móti voru 18 prósent frekar eða mjög ósammála því að málið væri tekið aftur upp af dómstólum og þar af voru 9,7 prósent mjög ósammála og 8,3 prósent frekar ósammála.
Af þeim sem tóku afstöðu voru fleiri konur en karlar sammála því að taka ætti málið upp aftur eða 84,3 prósent kvenna borið saman við 79,8 prósent karla. Þeim sem voru sammála endurupptöku málsins fækkar með hækkandi aldri. Þannig voru 87 prósent yngsta aldurshópsins (18 – 29 ára) frekar eða mjög sammála því að taka aftur upp Guðmundar- og Geirfinnsmálið fyrir dómstólum borið saman við 78,9 prósent elsta aldurshópsins (50 – 67 ára). 921 einstaklingur svaraði umræddri könnun og fór hún fram dagana 6. til 10. október síðastliðinn.

Hemmi Gunn fallinn frá