ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Ótrúlegar myndir af suðurljósunum

Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
23:35 › 19. október 2011

Á myndinni og myndbandinu hér fyrir neðan má sjá ljósmyndir af suðurljósunum eða aurora australis. Við Íslendingar þekkjum betur norðurljósin, en hér má sjá myndir teknar úr geimfarinu IMAGE á vegum Nasa. Myndirnar voru teknar þann ellefta september árið 2005 og eru fyrir margar sakir einstakar, einkum og sér vegna þess að þær eru teknar úr geimnum, en flestir, þeir sem búa svo vel að hafa séð norður- eða suðurljós, fylgjast með þeim af jörðu niðri og er því sjónarhornið sérstakt.

Á Vísindavef Háskóla Íslands segir um norður og suðurljós:
Frá sólinni berst í sífellu svonefndur sólvindur sem er straumur rafhlaðinna agna. Þegar vindurinn nálgast jörðina hrindir segulsvið jarðarinnar honum frá sér nema í kringum segulpólana. Þar sleppur eitthvað af ögnunum inn í segulsviðið. Þegar eindirnar rekast á lofthjúp jarðar, í um 100-250 km hæð örvast sameindir og frumeindir í hjúpnum og þær senda frá sér sýnilegt ljós sem við köllum norður- eða suðurljós.

Hér geta áhugasamir lesið enn meira um norður og suðurljósin- Vísindavefur Háskóla Íslands

Myndasíða NASA



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?