Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
10:58 › 18. október 2011
Þekkir þú manninn á meðfylgjandi mynd? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður þá sem þekkja hann, eða vita hvar hann er að finna, að hafa samband í tengslum við rannsókn á vopnuðu ráni sem framið var í skartgripaverlun Michelsen á Laugavegi í gærmorgun.
Lögreglan hefur varist allra frétta af málinu síðan seinnipartinn í gær. Ræningjarnir ganga enn lausir og er þeirra leitað. Nú hefur lögreglan óskað eftir vitnum að grunsamlegum mannaferðum á Vegamótastíg frá klukkan 10 til 10:30 í gærmorgun.
Þá eru þeir sem geta veitt upplýsingar um manninn á meðfylgjandi mynd beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 eða senda upplýsingar á netfangið abending@lrh.is.

Hemmi Gunn fallinn frá