„Ég má alls ekki til þess vita að deildinni verði lokað og fólk fari á mis við þessa þjónustu,“ segir Ólafur Oddgeirsson sem er 82 ára og dvelur á líknardeild Landakots. Landspítalanum er gert að skera niður um 630 milljónir króna á næsta ári sem leiðir til þess að loka þarf þremur deildum og fækka starfsmönnum um 85.
Til að bregðast við þessu hefur spítalinn ákveðið að loka réttargeðdeildinni á Sogni, loka hjúkrunardeild á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og loka líknardeild á Landakotsspítala. Á sama tíma mun íslenska ríkið borga 300 milljónir á ári í þrjú ár í landkynningarverkefnið Íslendingar! Bjóðum heim, eða 900 milljónum á næstu þremur árum. Samtals verður varið 600 milljónum á ári í verkefnið en einkaaðilar og sveitarfélög munu leggja fram 300 milljónir til móts við ríkisstjórnina.
Ólafur segir að að öllum öðrum sjúkrastofunum ólöstuðum sé Landakot sú langbesta. „Nærgætnin og umhyggjan hjá starfsfólkinu hér er til fyrirmyndar. Það er sárt að horfa upp á þetta,“ segir Ólafur í DV í dag.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013