300 þúsund börnum rænt frá foreldrum sínum

Börnin tekin af þeim sem voru með „hættulegar“ stjórnmálaskoðanir

Leynilegt net presta, nunna og lækna á Spáni hafa rænt allt að 300.000 börnum af foreldrum þeirra, og selt þau til annarra foreldra, að því er kemur fram í heimildarmynd BBC. Þetta hafa þau gert með því að segja alvöru móðurinni að barn hennar hafi látist við fæðingu, en í rauninni var barnið selt til ríkra foreldra.

Á þetta fyrst að hafa viðgengist í stjórnartíð einræðisherrans Franco, en markmiðið mun hafa verið að taka börnin af þeim sem voru með „hættulegar“ stjórnmálaskoðanir en ætla má að þar hafi oftar en ekki verið um kommúnista eða vinstrisinnað fólk að ræða. Samkvæmt Daily Mail á þetta að hafa viðgengist löngu eftir að Franco fór frá völdum eða allt til ársins 1990.

Hundruðir fjölskyldna sem misstu börnin sín á spænskum spítölum hafa farið fram á að rannsóknir verði gerðar, en ekkert slíkt er í farvatninu. „Staðan er mjög sorgleg fyrir þúsundir manss,“ sagði einn blaðamaður í heimildamyndinni. „Það er afar lítill pólitískur vilji til þess að komast til botns í þessu.“ Á meðal þess sem hefur verið uppgötvað samkvæmt frétt Daily Mail eru grafir barna þar sem einungis er að finna dýrabein sem og frosið lík hvítvoðunga, sem munu hafa verið í vörslu nunna svo þær gætu sýnt mæðrum eftir fæðingu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.