Tveir jarðskjálftar á Hengilssvæðinu uppá 3,8 í morgun

Tveir jarðskjálftar af stærðinni 3,8 urðu vestan til á Hengilssvæðinu í morgun. Sá fyrri varð kl. 09:03 og sá síðari 09:46. Skjálftarnir urðu á svipuðu svæði og samkvæmt bráðabirgðaútreikningum 25 km. austur af Reykjavík og 12 km norðvestur af Hveragerði, nánar tiltekið 64.07 N ; 21.42 W.

Fyrri skjáltinn varð á um 1,8 km. dýpi og fannst greinilega víða á suðvesturhorni landins þar á meðal á Höfuðborgarsvæðinu. Sumir vöknuðu upp við skjálftann þegar lausamunir tóku að hristast. Sá síðari sem varð 43 mínútum síðar var á um 2,3 km. dýpi.

Skjálftar á þessu svæði eru vel þekktir og þurfa ekki að boða frekari atburði á svæðinu en síðustu daga hefur vatni verið dælt niður í borholur í tengslum við Hellisheiðavirkjun. Það er vel þekkt í jarðvísindum að niðurdæling vatns framkalli jarðskjálfta en niðurdæling er framkvæmd bæði til að halda uppi vatnsþrýstingi sem og að skila aftur í jarðhitageyminn því vatni sem kemur uppúr borholum á svæðinu.

Unnið er að fara yfir fyrstu niðurstöður vegna þessara skjálfta.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.