„Orkuveita Reykjavíkur er að dæla niður affallsvatni og er að framkalla jarðskjálfta sem eru allt að 4 á stærð. Og þetta er algjörlega ólíðandi,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Hún segir bæjarbúa vera búna að fá meira en nóg af manngerðum jarðskjálftum í þúsundatali.
Þegar DV náði tali af Aldísi var hún stödd á vikulegum opnum fundi Sjálfstæðismanna þar í bæ. Í dag er þar fullt hús af reiðum Hvergerðingum sem enn eru eftir sig eftir tvo snarpa jarðskjálfta frá Hellisheiðarvirkjun í morgunsárið.
„Þeirra gætir mjög kröftuglega hér í Hveragerði og mér þætti fróðlegt að vita hvort Orkuveita Reykjavíkur myndi nýta þessi vinnubrögð ef þau hefðu þessi áhrif á Reykvíkinga og Reykjavíkurborg eins og þau hafa hér,“ segir Aldís.
Aðspurð hvort bæjaryfirvöld standi ráðalaus gagnvart þessari starfsemi Orkuveitunnar segir Aldís að bæjarstjórnin sé búin að álykta gegn þessu og óska skýringa frá vísindamönnum og Orkuveitunni.
„Manni finnst sinnuleysi opinberra eftirlitsaðila orðið hróplegt. Við Hvergerðingar erum ekki óvanir jarðskjálftum. Og við höfum valið okkur þennan stað til búsetu og líkar það alveg ágætlega. En við munum aldrei láta það yfir okkur ganga að hér séu manngerðir jarðskjálftar í þúsundatali með reglulegu millibili án þess að spyrna við fótum.“
Aldís bendir á að það séu um þrjú ár síðan íbúar á svæðinu upplifðu stóran skjálfta. Og þegar jörðin tekur að skjálfa, hvort heldur sem er af náttúrulegum orsökum eða af mannavöldum, þá verði fólk skelkað. Engin leið sé að greina þessa tvo hluti í sundur enda hegði jarðskorpan sér með sama hætti. „Við og Íslendingar eru vanir náttúruhamförum en við erum ekki vön því að það sé vísvitandi verið að leika sér þannig að náttúrunni að verið sé að búa til náttúruhamfarir.“
Aldís biður stjórnendur og eigendur Orkuveitunnar að setja sig í spor annarra. Aldís segir bæjaryfirvöld og íbúa ekkert hafa heyrt frá Orkuveitunni nema í gegnum fréttatilkynningar þar sem talað er um hrinur smáskjálfta. „En mér finnst þetta löngu hætt að falla undir smáskjálfta,“ segir bæjarstjórinn.
„Það er alveg ljóst að við munum ekki sitja undir því þegjandi ef þetta á að vera svona næstu áratugina, og jafnvel í meira mæli, því hér eru fyrirhugaðar allavega tvær virkjanir til viðbótar, væntanlega með tilheyrandi niðurdælingu geri ég ráð fyrir.“

Hemmi Gunn fallinn frá