Réttarhöld í Black Pistons-málinu svokallaða héldu áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Eins og áður hefur komið fram var þriðji maðurinn ákærður fyrir sína aðild að málinu.
Sá var aðeins 16 ára þegar meint brot eiga að hafa átt sér stað. Á miðvikudag hélt aðalmeðferð í málinu áfram, þar sem fórnarlambið ásamt sakborningunum þremur mætti fyrir dóm. Sakborningarnir Ríkharð Július Ríkharðsson og Davíð Freyr Rúnarsson játa að hafa beitt manninn ofbeldi með spörkum og hrindingum en neita að hafa beitt hvers kyns vopnum, svipt unga manninn frelsi og tilraun til ráns. Þriðji sakborningurinn, Brynjar Logi Barkarson, er ákærður fyrir frelsissviptingu og tilraun til ráns. Hann neitar sök.
Hulda Elsa Stefánsdóttir saksóknari sagði árásina fólskulega og að fórnarlambið væri enn að kljást við andlegar og líkamlegar afleiðingar hennar. Sjónsvið unga mannsins skaddaðist við árásina og hefur ekki komið að fullu til baka. Óvíst er hvort skerðingin muni ganga til baka. Vegna alvarleika málsins fór saksóknari fram á þriggja ára fangavist fyrir Ríkharð og Davíð Frey en eins og hálfs árs fangelsi yfir Brynjari Loga.
Guðmundur St. Ingólfsson, verjandi Davíðs Freys, sagði fórnarlambið hafa farið í þrjár skýrslutökur og þrátt fyrir að honum hefði verið sagt að segja satt og rétt frá hefði hann ekki gert það. „Hversu mikið hefur hann sagt rétt frá?“ spurði Guðmundur. Framburður Brynjars Loga studdi að mörgu leyti framburð fórnarlambsins, en svo virðist sem verjandanum Brynjari Níelssyni þyki Brynjar Logi heldur ekki vera áreiðanlegt vitni. Brynjar gekk svo langt að segja framburð Brynjars Loga „fullkomlega ómarktækan“, bæði í skýrslutöku hjá lögreglu og fyrir dómi. Svo virðist sem Brynjar þekki til nafna síns persónulega og byggi þessa fullyrðingu sína á því. Brynjar benti á að alvarlegasti áverki fórnarlambsins væri nefbrot og gæti árásin ekki verið talin sérstaklega hættuleg.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013