Gunnar Rúnar sakhæfur: Dæmdur í 16 ára fangelsi

Hæstiréttur snéri við sýknudómi héraðsdóms

Hæstiréttur dæmdi Gunnar Rúnar Sigurþórsson í 16 ára fangelsi fyrir morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Gunnar Rúnar hafði áður verið úrskurðaður ósakhæfur í Héraðsdómi Reykjaness. Taldi dómurinn Gunnar Rúnar vera sakhæfan og að fullu ábyrgan gjörða sinna. „Var ásetningur ákærða til að svipta [Hannes] lífi einbeittur og á hann sér engar málsbætur,“ segir í dómnum. Dóminn má lesa í heild sinni hér.

Úrskurði héraðsdóms var áfrýjað af ríkissaksóknara til Hæstaréttar en saksóknari krafðist þess að Gunnar Rúnar yrði úrskurðaður sakhæfur og dæmdur til fangelsisvistar eins og aðrir sem gerast sekir um morð. Gunnar Rúnar játaði á sig morðið í yfirheyrslum hjá lögreglu og fyrir dómi en hann reyndi fyrstu dagana eftir morðið að hala því leyndu að hann hefði banað Hannesi. Hann var tvívegis handtekinn við rannsókn málsins.

Ákæruvaldið lagði fram greinargerð sem Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir á Sogni, gerði á stöðu Gunnars Rúnars. Í greinargerðinni segir Sigurður Páll ekkert benda til þess að Gunnar Rúnar sé ástsjúkur, líkt og var niðurstaða geðmats á honum sem lagt var fyrir héraðsdóm sem úrskurðaði hann ósakhæfann.

Heyra mátti fagnaðarlæti á meðal fjölskyldu Hannesar Þórs en fjölskyldan hafði lýst opinberlega yfir vonbrigðum með að Gunnar Rúnar hafi verið úrskurðaður ósakhæfur í héraðsdómi. Fjölskylda Hannesar var í salnum þegar dómurinn var kveðinn upp. Hæstiréttur lækkaði bótagreiðslu sem Gunnari Rúnari er gert að greiða foreldrum Hannesar úr 1,8 milljónum niður í 1 milljón króna hvor.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.