Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
15:10 › 12. október 2011
Fimmtugur karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu á barnaníðsefni í tölvu sinni. Í tölvu hans fundust 174 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og/ eða klámfenginn hátt.
Húsleit var gerð á heimili mannsins í febrúar á þessu ári og fundust þá myndirnar. Tölva hans og ljósmyndirnar voru gerðar upptækar.
Maðurinn játaði brot sitt og þar sem hann hefur hreint sakavottorð var refsing hans skilorðsbundnir þrír mánuðir. Refsing fellur niður haldi hann almennt skilorð í þrjú ár.

Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum