Banaslys á Fagradal: Ung stúlka lést

Önnur stúlka flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur

Banaslys varð á áttunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell. Vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðri átt skullu saman.

Ökumaður fólksbifreiðarinnar, stúlka á nítjánda ári lést. Farþegi í fólksbifreiðinni einnig ung stúlka á nítjánda ári, slasaðist og var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Að svo stöddu er ekki hægt að upplýsa um nafn hinnar látnu.

Hálka er á vettvangi. Lögreglan hefur nú að mestu lokið við vettvangsvinnu en enn eru tafir á umferð.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.