49 ára karlmaður frá Hafnarfirði hefur verið ákærður fyrir fjölmörg brot gegn valdstjórninni, þar sem hann meðal annars hótaði aðstoðarsaksóknara ofbeldi og lögreglumönnum lífláti. Þá er hann einnig ákærður fyrir fíkniefnalagabrot.
Upphaf málsins má rekja til þess að 31. mars síðastliðinn var gerð húsleit á heimili mannsins í Hafnarfirði þar sem fundust sex kannabisplöntur og tæplega 50 grömm af kannabislaufum. Maðurinn hafði ræktað plönturnar um nokkurt skeið.
Síðan dró til tíðinda síðar sama dag þegar krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um sjö daga gæsluvarðhald yfir manninum var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness.
Þegar dómari hafði orðið við kröfu aðstoðarsaksóknara um gæsluvarðhaldið hótaði maðurinn saksóknaranum ofbeldi, benti á hann og sagði: „Bíddu bara, eftir sjö daga þegar ég losna.“
Maðurinn var ekki hættur því samkvæmt ákæruskali hótaði hann næst lögreglumanni sem staddur var í héraðsdómi við skyldustörf ofbeldi. Maðurinn tók upp stálstól, sveiflaði honum aftur fyrir sig og sýndi tilburði til að kasta honum í lögreglumanninn. Stuttu síðar í bílageymslu héraðsdóms reyndi maðurinn svo að hrækja á sama lögreglumann.
Samkvæmt ákæru var manninum ekki enn runnin reiðin föstudaginn 8. apríl þegar hann var fluttur í lögreglubifreið á Litla-Hraun. Á leiðinni hótaði hann tveimur lögreglumönnum sem voru í bílnum lífláti, auk þess að hóta að beita fjölskyldu annars þeirra ofbeldi.
Ákæran á hendur manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gærmorgun.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013