„Fyrsta skúbbið er á leiðinni“

Veðurfræðingurinn Siggi stormur er orðinn ritstjóri

„Þetta er öflugur ritstjórnarhópur sem ætlar sér stóra hluti,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur. Hann hefur tekið að sér ritstjórastarf Hafnarfjarðar vikublaðs, sem er systurblað Akureyrar vikublaðs og Reykjavíkur vikublaðs. Blöðin eru gefin út af Fótspor ehf.

Björn Þorláksson hefur stýrt Akureyri vikublaði frá því í haust en Haukur Holm hefur verið ráðinn ritstjóri Reykajvíkur vikublaðs. Sigurður bendir á að þeir þrír eigi ýmislegt sameiginlegt. Eitt af því sé að þeir hafi allir verið reknir af Stöð 2 á ferli sínum. Hann tekur reyndar fram að þá Ara Edwald hafi greint á um starfslok sín en segir þetta engu að síður raunina.

Siggi hefur lengi starfað við fjölmiðla. Hann hefur unnið bæði á RÚV og Stöð 2 auk þess sem hann hefur verið á Útvarpi Sögu og DV. „Þetta er svo skemmtileg vinna að ég gat ekki sagt nei,“ segir Siggi í samtali við DV. Hann segist þó ekki vera að hætta á öðrum vígstöðvum. „Ég er bara að bæta þessu við mig,“ segir hann en segir þó að hann hafi stundum ætlað að hvíla sig á veðurfræðinni. Það hafi hins vegar ekki tekist. „Maður leitar alltaf í það sem maður kann best, er það ekki?“

Hann hlakkar mikið til starfsins og segist ætla að velta við steinum. Hann hafi þegar tekið haug af viðtölum fyrir blaðið en hann hefur einn blaðamann með sér við vinnslu þess. „Ég á orðið 40 síður af skrifuðu efni,“ segir hann glaðbeittur og bætir við að hann þrífist á því að vera í samskiptum við fólk.

Spurður hvort honum hafi tekist að grafa upp fyrsta skúbbið sitt segir hann sposkur: „Já, reyndar. Fyrsta skúbbið er á leiðinni,“ segir hann en þvertekur auðvitað fyrir að gefa það upp. „Ég vona að ég haldi því fram á fimmtudag. En hugmyndin er að búa til öflugt fréttablað þar sem fréttir og mannlíf fær að njóta sín. Þetta er öflugur hópur sem stendur að þessari útgáfu.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.