„Mér finnst þetta alveg fráleitt,“ segir Árni Kolbeinsson, hæstaréttadómari um mál sem Svanur Kristinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi,hefur kært til ríkissaksóknara. Svanur segir Árna hafa borið á sig rangar sakargiftir, en Svanur, var í sumar sýknaður af því að hafa framið afglöp í starfi sumarið 2010. Árni segist ekki skilja málið, enda hafi kæra hans aldrei beinst að varðstjóranum.
„Ég tel þessa kæru alveg fráleita,“ segir Árni í samtali við DV. „Ég hef aldrei haft nein samskipti við þennan varðstjóra og aldrei beint neinni kæru að honum. Það komu tveir lögregluþjónar fram við mig með ákveðnum hætti sumarið 2010 og beindi ég kæru að þeim. En þennan varðstjóra hef ég aldrei hitt og veit eiginlega ekkert hvaða hlut hann átti að málinu,“ segir Árni, „mín kæra beindist ekkert að honum, heldur framgöngu þessara tveggja lögreglumanna.“
Svanur Kristinsson, varðstjóri, var sýknaður í héraðsdómi af ákæru um afglöp í starfi. Undirmenn Svans óku með óstrýlátan tvítugan mann af útihátíð í Galtalæk og skildu hann eftir í sumarbústaðahverfi í landsveit, rétt við sumarbústað Árna Kolbeinssonar. Þar var maðurinn enn með ófrið og kallaði Árni því til lögreglunnar. Hann komst þá að því hvers vegna maðurinn var í sumarbústaðahverfinu. Hann segist sjálfur hafa kært lögreglumennina sem hann hafði samskipti við, en ríkissaksóknari gaf í kjölfarið út ákæru á hendur Svani fyrir að hafa „gerst offari við framkvæmd lögreglustarfans og ekki gætt lögmætra aðferða,“ og var honum gefið að sök að hafa fyrirskipað að manninum yrði ekið af svæðinu og hann skilinn eftir um nóttina. Dómurinn kvað Svan hafa brugðist rétt við og að manninum hefði ekki verið hætta búin. Svanur var því sýknaður af öllum ákærum og hefur málinu ekki verið áfrýjað, en hefur Svanur þess í stað ákært Árna fyrir rangar sakagiftir.
Tengdar fréttir
Lögreglumaður kærir hæstaréttardómara fyrir rangar sakagiftir

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013