Borgarstjórn hefur nú samþykkt að trúfélög eigi ekki að fá að athafna sig innan leik- og grunnskóla borgarinnar,
Borgaryfirvöld koma fram við Gídeonfélagið af mikilli vanvirðingu, segir Sigurbjörn Þorkelsson, rithöfundur og fyrrverandi forseti og framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag undir yfirskriftinni „Blessuð borgarstjórnin“.
Borgarstjórn hefur nú samþykkt að trúfélög eigi ekki að fá að athafna sig innan leik- og grunnskóla borgarinnar, þar sem að í mannréttindastefnu borgarinnar er kveðið á um að ekki skuli mismuna íbúum eftir lífs- og trúarskoðunum. Í nýju reglunum segir að gæta verði þess að við allar heimsóknir til og frá grunnskóla vegna fræðslu um trú og lífsskoðanir að nemendur fylgist með en séu ekki þátttakendur í helgisiðum og athöfnum, og að þær séu ekki vettvangur fyrir innrætingu eða dreifingu á boðandi efni. Því er Gídeonfélaginu óheimilt að gefa nemendum Nýja testamentið.
„Ég verð að játa að ég er algjörlega miður mín yfir óskiljanlegri samþykkt meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur sem snýr greinilega fyrst og síðast að því að koma í veg fyrir að nemendur 5. bekkjar grunnskóla fái að njóta þeirra sjálfsögðu mannréttinda að fá að þiggja Nýja testamentið að gjöf frá Gídeonfélaginu á skólatíma eins og tíðkast hefur með virðingu og í góðu samstarfi við skólayfirvöld í um 60 ár,“ skrifar Þorkell. Hann segir að Nýja testamentið sé skilgreint sem kennslugagn í aðalnámsskrá en nú hafi borgarstjórn ákveðið taka það út úr kennslu.
„Mig setur hljóðan og hlýt að harma þessa illa ígrunduðu niðurstöðu, fyrst og fremst náttúrulega fyrir hönd komandi árganga Íslendinga og kynslóða sem ekki munu hafa tækifæri til að þiggja Nt að gjöf eins og Íslendingar 10-69 ára hafa nú fengið að gera,“ segir Sigurbjörn. „ En að auki vegna framkomu borgaryfirvalda í garð Gídeon félagsins og liðsmanna þess sem sinnt hafa starfi sínu af alúð í öll þessi ár í góðu og þakkarverðu samstarfi við skólalandsins og fræðsluyfirvöld allt fram á þennan dag,“
Sigurbjörn segir að í Gídeonfélaginu starfi áhugafólk um útbreiðslu Biblíunnar. Með heimsóknum sínum í skólana hafi félagsmenn ekki stundað trúboð, heldur gefið börnunum gjafir. Borgaryfirvöld hafi ekki sett sig í samband við félagið vegna málsins.
Að lokum segir Sigurbjörn:
„Að lokum vil ég biðja kærleiksríkan Guð að miskunna þessu fólki sem getur ekki verið sjálfrátt og fyrirgefa því, því það getur varla vitað hvað það er að gera. Með einlægri von um að þessi skelfilegu mistök verði leiðrétt hið fyrsta, áður en þau valda meiri skaða en nú þegar er orðið.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
