ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Var pirraður og sigraði heiminn

Matt Mullenweg, þróunarstjóri Wordpress, í viðtali við DV
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
16:00 › 1. október 2011
Matt Mullenweg byrjaði að þróa WordPress-vefumsjónarkerfið fyrir tvítugt. Þegar WordPress var orðið vinsælt bauðst Matt að selja fyrirtæki sitt fyrir tæpa 24 milljarða króna en hann sagði nei.

Matt Mullenweg byrjaði að þróa WordPress-vefumsjónarkerfið fyrir tvítugt. Þegar WordPress var orðið vinsælt bauðst Matt að selja fyrirtæki sitt fyrir tæpa 24 milljarða króna en hann sagði nei.

„Ég hef alltaf haft ástríðu á skrifum og útgáfu. Ég byrjaði sjálfur að skrifa blogg en var pirraður á hugbúnaðinum sem var í boði,“ segir Matthew Mullenweg, þróunarstjóri WordPress-vefumsjónarkerfisins. Matthew, sem iðulega gengur undir nafninu Matt, hefur á undanförnum árum náð ótrúlegum árangri á sviði nethugbúnaðar en WordPress-kerfið er mest notaða vefumsjónarkerfi í heiminum í dag.

Matt byrjaði einn fyrir framan tölvuna heima hjá sér en núna er hann með tæplega 90 starfsmenn í vinnu. Matt rekur fyrirtækið Automattic sem er með höfuðstöðvar í San Francisco en fyrirtækið sér um þróun á WordPress-kerfinu, sem er opið öllu til notkunar endurgjaldslaust.

„Hugbúnaðurinn var í fyrstu bara fyrir mig og vini mína og það voru í raun alls ekkert margir sem notuðu hugbúnaðinn,“ segir Matt. „Fyrstu notendur WordPress var fólk sem trúði á opinn hugbúnað, fólk sem var umhugað um opinn vef,“ segir hann um fyrstu notendur WordPress. Matt segir að erlendir markaðir sem önnur fyrirtæki voru ekki að stíla inn á hafi verið kappsömustu notendurnir. „Við vorum rödd þessa hóps.“

Matt Mullenweg settist niður með blaðamanni DV og ræddi WordPress, velgengnina og þá sýn sem hann hefur á heiminum.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?