Steingrímur J. er bjartsýnn

Hefur þó áhyggjur af umræðunni og andrúmsloftinu

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er bjartsýnn um komandi tíma og segir hann að róðurinn léttist. „Hagkerfið er tvímælalaust að taka við sér og við erum að hafa okkur út úr þessu. Efnahagslega er ég nokkuð bjartsýnn. Ísland hefur allt sem þarf til að komast úr þessu en það er auðvitað í okkar höndum. Ég hef frekar áhyggjur af andrúmsloftinu og umræðunni,“ segir Steingrímur í samtali við DV og bætir við að hann telji mótmælin við þingsetninguna hafa verið tiltölulega friðsamleg. „Þau sluppu stóráfallalaust en þau endurspegla að það kraumar enn óánægja og reiði í samfélaginu, sem er alveg fullkomlega skiljanlegt. En svona er þetta, það sem gerðist á Íslandi gerðist og verkið er að vinna okkur út úr því. Þessu miðar.“

Aðspurður um hvernig ríkisstjórnin hyggst vinna úr hallanum svarar Steingrímur: „Ég get sagt það að við ætlum að taka skórt skref áfram á næsta ári með um helming af því sem eftir er af hallanum. Fara úr rúmum 40 milljörðum, sem við reiknum með að verði hallinn á þessu ári, og niður í tæpa 18 milljarða, og þá erum við komin ansi langt. Þannig að róðurinn er nú að léttast, stóru og hættulegu tölurnar eru að hverfa af sjónarsviðinu og þetta er að verða miklu minna sem eftir er.“

„Nú stefnum við á um það bil jöfnuð árið 2013, það verður rétt við núllið 2013 og við gerum ráð fyrir að markinu verði náð árið 2014. Það tengist þessari nýju endurskoðuðu ríkisfjármálaáætlun sem er aðlöguð að því hvernig hefur gengið og þar sem það hefur gengið heldur betur en áætlunin gerði ráð fyrir árið 2009 þá er hægt að aðlaga þetta núna. Það er ekki síst hugsað til þess að styðja við efnahagsbatann. Það má segja að við getum gert það vegna þess að þróunin hefur orðið heldur hagstæðari og við höfum náð meiri árangri en við gerðum ráð fyrir í byrjun. Til þess að mæta áhrifum kjarasamninganna og styðja við efnahagsbatann þá var þetta sett upp svona núna. Síðan er þetta í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og í samræmi við þær forsendur sem voru lagðar upp fyrir sjöttu endurskoðun.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.