ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Bjarni Ben reiður: „Þetta er tómt kjaftæði"

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
11:45 › 7. janúar 2011
Bjarni segist ekki hafa verið yfirheyrður hjá embættis sérstaks saksóknara. Á meðan heldur rannsóknin á Sjóvá og Vafningi áfram hjá sérstökum saksóknara.

Bjarni segist ekki hafa verið yfirheyrður hjá embættis sérstaks saksóknara. Á meðan heldur rannsóknin á Sjóvá og Vafningi áfram hjá sérstökum saksóknara.

„Þetta er tómt kjaftæði eins og annað sem þið skrifið,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar blaðamaður spyr hann hvort embætti sérstaks saksóknara hafi rætt við hann í tengslum við rannsóknina á tryggingafélaginu Sjóvá. Rætt hefur verið við marga þá er tengdust tryggingafélaginu fyrir efnahagshrunið í tengslum við rannsóknina. Það virðist þó vera hægt að skilja Bjarna á þann veg að hann hafi ekki verið yfirheyrður.

Hann vildi þó ítrekað ekki svara spurningu blaðamanns um hvort hann hefði verið yfirheyrður fyrr en í lok samtalsins þegar hann hækkaði róminn og sagði þetta vera tómt bull og kjaftæði. „Ég tek ekki þátt í svona skollaleik,“ sagði hann meðal annars í símtalinu.
Meðal þeirra sem yfirheyrðir hafa verið í tengslum við rannsóknina á Sjóvá er föðurbróðir Bjarna, Einar Sveinsson. Þeir tengjast ekki bara blóðböndum heldur einnig viðskiptaböndum í gegnum fjárfestingafélag fjölskyldu Bjarna, BNT ehf., þar sem Bjarni var fyrir efnahagshrun hluthafi og stjórnarformaður.

Bjarni fékk fullt og óskorað umboð frá Hafsilfri, Hrómundi og BNT, eigendum fjárfestingafélagsins Vafnings, til að veðsetja eignarhluti fjölskyldufélaganna þriggja í Vafningi hjá Glitni banka í febrúar 2008. Um svipað leyti, í lok febrúar 2008, lánaði Sjóvá Vafningi 10 milljarða króna með víkjandi láni. Ástæðan fyrir því að lánið var víkjandi er sú hversu stóran þátt Sjóvá og eigendur félagsins, þeir Karl og Steingrímur, áttu í félaginu. Lánið fékkst ekki greitt til baka og átti þátti í skilja eftir milljarða króna gat í eignasafni Sjóvár sem meðal annars hafði þær afleiðingar að íslenska ríkið þurfti að lána tryggingafélaginu fé til að fjármagna bótasjóð félagsins aftur.

Samkvæmt heimildum DV hefur embætti sérstaks saksóknara vitað um aðkomu Bjarna að viðskiptum Vafnings frá því byrjað var að rannsaka Sjóvá, og því ekki óeðlilegt að velta því upp hvort rætt hafi verið við Bjarna eða ekki. Unnið hefur verið markvisst að rannsókn málsins síðustu mánuði, samkvæmt heimildum DV, þó ekkert liggi fyrir um hvort og þá hvenær ákært verður í málinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?