Helmingur þjóðarinnar vill kjósa aftur um nýjan Icesave-samning, samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR. Að sama skapi vill helmingur þjóðarinnar að hann verði eingöngu afgreiddur af Alþingi.
MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort ákvarðanataka nýs Icesave samnings ætti að vera eingöngu í höndum Alþingis eða hvort bera ætti samninginn aftur undir þjóðaratkvæði. Af þeim sem tóku afstöðu voru 50,3 prósent sem vildu að nýi samningurinn yrði sendur í þjóðaratkvæði en 49,8 prósent sögðust vilja að hann yrði eingöngu afgreiddur af Alþingi, sem fyrr segir.
Niðurstöðurnar eru mjög svipaðar og voru í könnun MMR frá mars 2010 en þá vildu 49,5 prósent nýjanIcesave samning í þjóðaratkvæði en 50,5 prósent sögðust vilja samninginn afgreiddan eingöngu af Alþingi. Samtals tóku 78,5 prósent afstöðu til spurningarinnar. 890 svöruðu spurningunni.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
