Birkir Kristinsson, yfirmaður í einkabankaþjónustu Glitnis og fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, seldi nánast öll hlutabréf sín í Glitni í júlí 2008, rúmum tveimur mánuðum fyrir íslenska efnahagshrunið. Birkir er viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu Íslandsbanka í dag.
Eignarhaldsfélag Birkis átti rúmlega 0,4 prósenta hlut í Glitni í júlí 2008 en í ágúst var hlutabréfaeign hans komin niður í núll samkvæmt heimildum DV. Miðað við gengi bréfa í Glitni á þessum tíma hefur Birkir fengið rúmlega 1,8 milljarða fyrir hlutinn. Þessi upphæð bættist við þær um 500 milljónir sem hann fékk fyrir hlutabréf í Glitni sem hann seldi í febrúar 2008. Heildarsala Birkis á hlutabréfum í Glitni árið 2008 nam því um 2,3 milljörðum króna.
Einkabankaþjónusta Glitnis, sem og einkabankaþjónustur almennt séð, hafa það hlutverk að ráðleggja viðskiptavinum sínum að fjárfesta í tilteknum hlutabréfum, sjóðum, skuldabréfum, afleiðusamningum eða öðrum fjármálaafurðum. Starfsmenn þessara deilda eiga því að vera mjög vel upplýstir um stöðu þess fjármálafyrirtækis sem þeir vinna hjá og jafnframt um stöðuna á fjármálamarkaði almennt.
Erfitt er því að draga aðra ályktun um sölu Birkis á hlutabréfunum í Glitni en þá að hann hafi verið búinn að missa trúna á bankanum sem hann vann fyrir rúmum tveimur mánuðum fyrir hrun hans og hafi byggt þá ákvörðun sína að selja bréfin á traustum upplýsingum innan úr bankanum.
Glitnir hélt hins vegar áfram að selja hlutabréf í bankanum til að fjárfesta fram að hruninu, frægasta dæmið um slíkt eru kaup félags Róberts Wessmann á eignarhlut í Glitni nokkrum dögum fyrir upphaf hrunsins.
DV sendi Birki fyrirspurn um málið sem hann svaraði ekki.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
