Herferð fyrir hvíta kynstofninn: „And-rasisti er dulorð um and-hvíta“

Sá sem beitir sér gegn aðskilnaði kynþátta er á móti hvíta manninum. Þetta er boðskapur herferð öfgamanna sem birt hafa myndbönd á vefnum þar sem því er haldið fram að orðið and-rasisti sé í raun and-hvítur og hvetji til útrýmingar á hvíta kynstofninum. „Þeir sem eru á móti fordómum eru náttúrulega þeir sem hafa eitthvað vit í kollinum, eða það finnst mér allavega,“ segir Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista á Íslandi, um þennan boðskap.

Myndbandi sem umræðir skartar konu sem les upp boðskapinn á íslensku. „En ef ég segi þann augljósa sannleika um yfirstandandi áætlun um þjóðarmorð á mínum kynstofni, hvíta kynstofninum, þá eru umburðarlyndir og sómakærir íhaldsmenn sammála um að ég sé nasisti sem vill drepa sex milljónir júða,“ segir í myndbandinu.

Dane gefur lítið fyrir þennan boðskap en hann segir umræðu um fordóma vera tuttugu árum á eftir á Íslandi og sé jafnan sópað undir teppið. „Nú er kominn tími þar sem margir Íslendingar eru að flýja af landinu og byrja nýtt líf annarsstaðar. Ef menn eru með svona fordóma þegar þeir fara frá Íslandi þá lenda þeir í allskonar vandræðum út í hinum stóra heimi,“ segir Dane Magnússon í samtali við DV.is en hann segir bestu kennsluna fyrir fólk með fordóma sé að prufa að vera útlendingur í öðru landi. „Besta kennslan fyrir svona fólk er að læra hvernig er að vera útlendingur í öðrum löndum og koma heim með allt annan hugsunargang.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.