ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Glitnir yfirtók Vafning

05:00 › 13. janúar 2011
Glitnir hefur yfirtekið eignarhaldsfélagið Vafning vegna rúmlega 30 milljarða skulda þess við bankann. Karl Wernersson var einn af eigendum Vafnings.

Glitnir hefur yfirtekið eignarhaldsfélagið Vafning vegna rúmlega 30 milljarða skulda þess við bankann. Karl Wernersson var einn af eigendum Vafnings.

Skilanefnd Glitnis hefur yfirtekið eignarhaldsfélagið Földung, áður Vafning, vegna skulda þess við bankann. Tilkynning þess efnis barst ríkisskattstjóra í byrjun árs 2010. Stjórnarmaður Földungs í dag er Eiríkur S. Jóhannsson, starfsmaður skilanefndar Glitnis.

Vafningur var eignarhaldsfélag sem stofnað var til að endurfjármagna lán sem eignarhaldsfélög í eigu þeirra bræðra Karls og Steingríms Wernerssona og Benedikts og Einars Sveinssona áttu í sameiningu. Földungur skuldaði tæplega 33 milljarða króna samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2008. Reikna má með því að bróðurpartur þessara skulda sé við Glitni. Ársreikningur Földungs fyrir árið 2009 liggur ekki fyrir.

Líkt og DV hefur greint frá veðsetti Bjarni Benediktsson, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi formaður hans, hlutabréfin í Vafningi vegna láns frá Glitni fyrir hönd föður síns Benedikts og frænda síns Einars. Félög í eigu Einars og Benedikts, BNT, Hrómundur og Hafsilfur, voru hluthafar í Vafningi ásamt eigendum Milestone, Karli og Steingrími Wernerssonum. Bjarni var jafnframt stjórnarformaður BNT á þessum tíma.

Veðsetning Bjarna tengdist endurfjármögnun á láni frá fjárfestingarbankanum Morgan Stanley sem notað var til að fjármagna kaup annars eignarhaldsfélags, Þáttar International, sem þeir Sveins- og Wernerssynir áttu saman. Inni í Vafningsfléttunni voru einnig lán frá tryggingafélaginu Sjóvá sem áttu þátt í að rýra eignasafn félagsins það mikið að félagið gat ekki staðið við vátryggingarskuldbindingar sínar. Íslenska ríkið þurfti að bjarga Sjóvá frá þroti með því að leggja því til eignir upp á um 12 milljarða króna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?