Það er fremur þungbúið yfir ensku knattspyrnustjörnunni Wayne Rooney þessa dagana. Fjölmiðlar í Bretlandi greindu frá því að hann hafi greitt vændiskonu fyrir að stunda kynlíf með sér á meðan eiginkona hans var ólétt. Hafa breskir fjölmiðlar fjallað ítarlega um einkalíf Rooney eftir að þetta komst í dagsljósið. Vefsíða breska dagblaðsins The Sun greinir frá því að Rooney hafi reynt að fleka tvítuga konu í veislu um síðastliðin jól í Manchester-borg.
Konan heitir Samii Darnley og sést hún sitjandi í kjöltu Rooney á mynd sem birt er á síðunni. Segja heimildarmenn The Sun að Rooney hafi reynt vel og lengi við hana á meðan veislunni stóð. Rooney reyndi við Samii sex vikum eftir að eiginkona hans Coleen fæddi son hans Kai og sex mánuðum eftir að hann stundaði kynlíf með vændiskonunum Jennifer Thompson og Helen Wood.
Veislan var á veitingastað Rio Ferdinands í Manchester sem nefnist Rosso. Flestir gestir veitingastaðarins voru farnir þegar leikmennirnir mættu á svæðið en nokkrar konur voru enn að snæðingi þar þegar þeir mættu. Báðu þeir þær um að vera lengur og hringja í vinkonur sínar og bjóða þeim. Samii var á meðal þeirra sem þáði boðið og er sögð hafa fangað augu Rooney.
Rooney er sagður eiga von á mikilli óvild þegar hann leikur við Everton á Goodison Park á laugardag. Rooney fór frá Everton til Manchester United og hefur fengið óblíðar móttökur þar í hvert sinn sem hann sækir liðið heim í búningi United. Þetta mál er talið eiga eftir að margfalda hatur Everton-manna í garð Rooney.





Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar
„Fyrirgefðu, bless“
Breivik krafðist þess að verða látinn laus