ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Sortuæxlafaraldur á Íslandi - Konur í meirihluta

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:33 › 9. september 2010

Fimmtíu greinast með sortuæxli á hverju ári á Íslandi og eru konur þar í meirihluta þess hóps. Alþjóða krabbameinsrannsóknarstofnunin lét gera rannsókn á þessu vegna þess að fjöldi sortuæxla meðal íslenskra kvenna slær allt annað út sem sést hefur á heimsvísu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 en þar var greint frá því að hið virta tímarit, American Journal of Epidemiolgy, hafi dregið upp dökka mynd af faraldri sortuæxla á Íslandi.

Íslendingar voru með lægstu tíðni sortuæxla fyrir árið 1990 en eftir það hafi þróunin orðið sú að íslenskar konur eru með hæðstu tíðni sortuæxla. Er þar tíðri ljósabekkjanotkun kennt um eftir árið 1990. Sagði Laufey Tryggvadóttir faraldsfræðingur í kvöldfréttum Stöðvar 2 að um einstakan farald sortuæxla sé að ræða sem slær allt annað út í heiminum. Nokkuð hefur dregið úr tíðni sortuæxla á meðal yngri kvenna á síðustu árum og er miklu forvarnarstarfi þakkað þar. Á meðan fimmtíu greinast með ífarandi sortuæxli á hverju ári að meðaltali þá hafi einungis sex á hverju ári greinst með slíkt mein fyrir þrjátíu árum. Níu manns deyja að jafnaði úr sortuæxli á hverju ári á Íslandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.