Sala Íslandsbanka á tryggingafélaginu Sjóvá er nú á lokastigi samkvæmt heimildum DV. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka sér um söluna á félaginu. Einn áhugasamur kaupandi mun vera eftir í ferlinu en það er fjárfestahópur sem vogunarsjóðsmaðurinn Heiðar Már Guðjónsson fer fyrir.
Ekki liggur ljóst fyrir nákvæmlega hvenær gengið verður frá sölunni en það mun styttast í það. Samkvæmt heimildum strandar söluferlið fyrst og fremst á því hversu flókin salan á fyrirtækinu er en ekki á deilum um verð. Óljóst er hversu hátt verð mun fást fyrir Sjóvá en sérfræðingar á tryggingamarkaði sem DV ræddi við fyrir skömmu töldu að verðið gæti hlaupið á bilinu 2 til 5 milljörðum króna.
Nánast má því fullyrða að íslenska ríkið muni tapa hluta af þeim 11 milljörðum sem það lagði inn í tryggingafélagið í fyrra til að bjarga því frá gjaldþroti. Samtals lögðu ríkið, Glitnir og Íslandsbanki félaginu til 16 milljarða króna til að bjarga því. Sjóvá stóð þá frammi fyrir gjaldþroti eftir stormasama eigendatíð Karls Wernerssonar og eignarhaldsfélags hans, Milestone, en félagið gekk svo á eignasafn Sjóvár að það stóð frammi fyrir gjaldþroti.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
