ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Prófessor lifir á ruslfæði í mánuð

07:57 › 9. september 2010
Haub ætlar að lifa á kleinuhringjum og bakkelsi í heilan mánuð en samt léttast. Síðan ætlar hann að borða hollt og þyngjast í algjöru flippi.

Haub ætlar að lifa á kleinuhringjum og bakkelsi í heilan mánuð en samt léttast. Síðan ætlar hann að borða hollt og þyngjast í algjöru flippi.

Mark Haub, prófessor í næringarfræði, hefur ákveðið að nota sjálfan sig sem tilraunadýr til að umturna kenningum um heilsusamlegt líferni. Þennan mánuðinn borðar Haub nær eingöngu kalóríkuríkt ruslfæði og hyggst samt léttast umtalsvert.

„Er það aðeins þyngd okkar sem við ættum að hugsa um, eða kannski það sem við borðum? Ef maður léttist þá hlýtur mataræðið að teljast heilsusamlegt,“ segir Haub í samtali við AOL-fréttastofuna.

Nú þegar tvær vikur eru liðnar af tilrauninni hefur Haub misst rúmlega þrjú kíló en viðurkennir að honum líði eins og verið sé að þrengja að hausnum á sér með þvingu.

Í næsta mánuði hyggst síðan prófessorinn við Kansas State-háskólann snúa blaðinu gjörsamlega við og borða eingöngu hollan mat eins og ávexti, grænmeti og trefjar. Þar ætlar hann að þyngja sig og sanna að slíkt mataræði sé ekki jafn „hollt“ í hefðbundinni skilgreiningu þess orðs í nútíma næringarfræði og menn vilja meina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.