ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Neitar að biðjast afsökunar á hópnauðgunar ummælum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:36 › 9. september 2010
David Haye.

David Haye. Mynd Reuters

David Haye, bresk hnefaleikastjarna, hefur neitað að biðjast afsökunar á því þegar hann sagði bardaga sinn við Audley Harrison eiga eftir að verða jafn mikil einstefna og hópnauðgun.

Ummælin ollu mikilli reiði á meðal baráttusamtaka gegn nauðgunum í Bretlandi. Var boxarinn sagður hafa orðið sér til skammar og var beðinn um að draga ummælin til baka. Haye sagði við fréttastofu Sky að fullyrðingin hefði verið það versta sem hann gat hugsað sér og því hefði hann líkt bardaganum við hópnauðgun. Hann sagðist vita af því að þetta hefði valdið töluverðri reiði en ítrekaði að hann skammaðist sín ekki vegna þeirra.

„Ég skammast mín ekki fyrir ummælin. Ég vonast til að fólk horfi á bardagann og sjái eitt það svakalegasta rothögg sem um getur,“ sagði Haye. „Ég hefði geta notað annað orðalag. Ég hefði getað sagst ætla að berja hann það illa að það yrði eins og hópnaugðun.“

Hann ítrekaði þó að hann hefði ekki verið að meina að hann ætlaði sér í raun að hópnauðga Audley Harrison. Haye er handhafi WBA-beltisins og keppa þeir um það. Haye sagði Harrison vera heppinn að fá að keppa um beltið og sagði hann í raun ekki eiga skilið að berjast um það. „Þú verður rotaður. Þú verður borinn út úr hringnum á börum, ég lofa þér því,“ sagði Haye sem líkt og Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur fengið mikla gagnrýni fyrir ógætilegt orðalag í fjölmiðlum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.