Þórir Brynjúlfsson hefur sent sýslumanni Reykjavíkur aðfararbeiðni vegna greiðsluáskorunar sem Íslandsbanki hafnaði. Óskaði hann eftir flýtimeðferð á málinu af hendi dómsmálaráðherra. Þórir sendi fyrr í mánuðinum kröfu um að greiða ætti upp lán og greiðsluáskorun á Íslandsbanka vegna bílaláns sem hann er með hjá bankanum. Lánin voru gengistryggð en gengistrygging lána vor dæmd ólögmæt í Hæstarétti fyrr í sumar.
Íslandsbanki féllst á að endurreikna lánin miðað við forsendur Héraðsdóms um að gengistryggðu lánin ættu að bera óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands í stað gengistryggingar.
Bankinn féllst hinsvegar ekki á það að lánin yrðu greidd upp miðað við fyrrgreindar forsendur og bar þess við að Hæstiréttur hefði ekki ennþá skorið úr um það hvaða vextir ættu að gilda á lánunum. Bankinn samþykkti því að endurreikna lánið en ekki að greiða það upp.
Þórir samþykkti þetta ekki og hefur krafist aðfarar vegna áskorunarinnar en hann hyggst einnig leggja fram kærur til ríkissaksóknara og efnahagsbrotadeildar vegna synjunar á uppgreiðslu lánsins á grundvelli þess að um ólögmæta viðskiptahætti væri að ræða af hálfu bankans.





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða