ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Einar Árnason aðstoðarmaður Ögmundar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:44 › 9. september 2010
Ögmundur Jónasson.

Ögmundur Jónasson.

Einar Árnason er sagður verða aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í málefnum sem varða samgöngu- og sveitarstjórnarmál í innanríkisráðuneytinu. Einar Árnason starfaði áður sem hagfræðingur hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og útskrifaðist sem hagfræðingur frá London School of Economics.

Í samtali við DV.is vildi Ögmundur Jónasson ekki staðfesta þetta og en sagði frétta að vænta á morgun frá ráðuneytinu. Í innanríkisráðuneytinu sameinast dóms- og mannréttindaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.