Bresk fyrirsæta var í dag sektuð um eitt þúsund pund fyrir að þiggja bætur frá breska ríkinu á meðan hún starfaði sem dagskrárkynnir á klámstöðinni Babestation.
Lori Buckby fékk dagpeninga frá ríkinu fyrir að sjá um veikan föður sinn, þrátt fyrir að hún þénaði fjögur þúsund pund á mánuði hjá sjónvarpsstöðinni, sem nemur rúmum sjö hundruð þúsund krónum. Þessi 25 ára kona, sem er frá Battersea í suður Lundúnum fékk 2406 pund frá ríkinu en hún hefur verið neydd til að borga þá upphæð til baka.
Hún játaði sekt síðastliðinn miðvikudag. Buckby rekur nú vefsíðu þar sem hún rukkar notendur síðunnar fyrir að skoða erótískar myndir af sjálfri sér. Áður en hún hóf að vinna í erótískabransanum annaðist hún föður sinn, sem fékk heilablóðfall árið 2005 og lamaðist að hluta við það.





Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar
„Fyrirgefðu, bless“
Breivik krafðist þess að verða látinn laus