ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Brutust inn í hús til að kela

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 9. september 2010

Par frá Flórída í Bandaríkjunum var handtekið fyrir að brjótast inn í hús. Svo sem ekki frasögum færandi nema fyrir útskýringu þeirra á innbrotinu. Þau sögðust hafa verið að leita sér að stað til að gamna sér á og varð umrætt hús fyrir valinu.

Talsmaður lögreglunnar í Monroe-sýslu segir nágranna hafa gert lögreglunni viðvart. Þegar lögreglan mætti á vettvang sást hvar gluggi hafði verið brottinn og hurðin á heimilinu opin. Þegar inn var komið sáu lögreglumennirnir Adrian Alonso og Iliu Gonzalez í ástarlotum. Þau voru kærð fyrir innbrotið og mun líða einhver tími þar til þau hittast á ný.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.