ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

Tölvuleikur veldur usla innan Bandaríkjahers

22:01 › 8. september 2010
Leikurinn hefur valdið talsverðu fjaðrafoki vestanhafs.

Leikurinn hefur valdið talsverðu fjaðrafoki vestanhafs.

Bandaríski herinn hefur ákveðið að banna sölu á tölvuleiknum Medal of Honor í tölvuleikjaverslunum í herstöðvum í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að í leiknum geta leikmenn brugðið sér í hlutverk Talíbana og skotið á bandaríska hermenn í Afganistan.

Leikurinn kemur ekki í verslanir í Bandaríkjunum fyrr en tólfta október næstkomandi. Vegna fjölda áskorana frá almenningi, auk þess sem Liam Fox, varnarmálaráðherra Bretlands, hvatti bandaríska herinn til að grípa til ráðstafanna, hefur leikurinn nú verið bannaður. Hermenn mega þó eiga leikinn en þeir verða að kaupa hann annarsstaðar en í einhverjum af þeim 300 verslunum sem selja tölvuleiki í herstöðvum í Bandaríkjunum.

Medal of Honor-leikirnir hafa notið mikilla vinsælda síðan þeir komu fyrst út og eru þeir orðnir þó nokkuð margir. Leikurinn sem kemur út í október gerist í Afganistan þar sem 140 þúsund hermenn berjast nú við Talíbana.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.