ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

Þyrlan sækir slasaðan hestamann

22:21 › 8. september 2010
Þyrlan fór í loftið rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Fjarskiptasamband við slysstaðinn er lélegt.

Þyrlan fór í loftið rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Fjarskiptasamband við slysstaðinn er lélegt.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, fór í loftið rétt fyrir klukkan tíu í kvöld til að sækja slasaðan hestamann í Þorgeirsfirði, sem er á milli Eyjafjarðar og Skjálfanda.

Björgunarsveitir í Eyjafirði voru einnig kallaðar út vegna slyssins um níu leytið í kvöld og eru þær á leið á staðinn. Hægt er að komast langleiðina á bíl en síðan þarf að ganga yfir hálsinn frá Hvalvatnsfirði yfir í Þorgeirsfjörð. Áætlað er að fyrstu björgunarmenn komi á staðinn rétt eftir kl 11 í kvöld. Um 25 björgunarsveitamenn taka þátt í aðgerðinni.

Ekki er vitað um líðan mannsins og fjarskiptasamband við svæðið er lélegt, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.