ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Súrt vatn undir Jóhannesarborg

Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is
22:46 › 8. september 2010
Vatnið gæti valdið krabbameini meðal íbúa borgarinnar.

Vatnið gæti valdið krabbameini meðal íbúa borgarinnar.

Yfirvöld í Jóhannesarborg í Suður-Afríku reyna nú að byggja hreinsistöðvar áður en gríðarlega mikið magn af menguðu námuvatni flæðir upp á götur borgarinnar. Yfirgefnar námur í og við borgina hafa fyllst af grunnvatni sem mengast af snertingu við málmana í námunum.

Þegar það rís mun vatnið, sem hefur sama sýrustig og edik, hugsanlega leiða til smáskjálfta og rafmagnsleysis og valda krabbameini á meðal íbúa borgarinnar. Eitt og hálft ár mun líða áður en vatnið kemst upp á yfirborðið og borgaryfirvöld þurfa að bregðast við í tæka tíð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.