ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Þráinn: Pólitík er liðsíþrótt

Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is
17:00 › 8. september 2010
Þráinn Bertelsson í þingflokksherbergi Vinstri-grænna nú síðdegis.

Þráinn Bertelsson í þingflokksherbergi Vinstri-grænna nú síðdegis.

Þráinn Bertelsson sem kjörinn var á þing fyrir Borgarahreyfinguna og hefur verið utan flokka síðustu misseri hefur gengið til liðs við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð.

Þráinn segist feginn því að ganga til liðs við flokk sem honum þykir afdráttarlaus í að beita sér fyrir þjóðfélagsumbótum og auknum jöfnuði í samfélaginu. „Ég hef verið minnstur, mögulegur minnihluti á Alþingi síðan þingflokkur Borgarahreyfingarinnar splundraðist,“ segir Þráinn. „Pólitík á alþingi er eins og allir vissu og ég vildi sannreyna, liðsíþrótt sem er stunduð af flokkum en ekki frjálsíþrótt stunduð af einstaklingum.“

Valið ekki erfitt
„Ég hef líka rekið mig á það einkum í sambandi við fjölmiðla að það segir fátt af einum. Ég leitaði að staðfestu í þingflokki þar sem ég taldi möguleika á að koma þeim stefnumálum í gegn sem ég var kosinn á þing til að gera upphaflega sem og öðrum málum sem ég tel vera þjóðþrifamál.

Þráni fannst valið ekki erfitt og segir það hafa staðið á milli stjórnarflokkanna tveggja, og að þingflokkur Vinstri Grænna hafi meðal annars haft vinninginn vegna kynna hans af því fólki sem starfar fyrir þingflokkinn. „Mér finnast Vinstri Græn líklegri til að breyta þjóðfélaginu meðan Samfylkingin er meira að reyna að bæta núverandi ástand.“

Tvær þjóðir í landinu
Þráni er umhugað um að gerðar verði miklar lýðræðisumbætur og að frekari áhersla sé lögð á að auka jöfnuð. „Mér finnast vinstri flokkarnir hafa gleymt höfuðtilgangi sínum. Okkur hefur hrakað hvað varðar jöfnuð í samfélaginu. Það samfélag sem var einu sinni skikkanlegt jafnaðarsamfélag er orðið að samfélagi þar sem ójöfnuður er áberandi og ríkjandi. Hér eru þeir ríku jafnari en aðrir. Þeir geta veitt sér hluti sem venjulegt fólk getur ekki látið sig dreyma um. Það er mikil reiði í samfélaginu milli þeirra sem eiga allt og þeirra sem eiga ekki neitt og skulda. Það eru tvær þjóðir í þessu landi núna og ég vil ekki búa í samfélagi þar sem búa húsbændur og hjú.“

Viðbrigði fyrir einbúa
Þráinn segir mikil viðbrigði fyrir einbúa eins og sig að komast loks til manna og segir viðtökur Vinstri Grænna hafa verið vænar. Hann gefur lítið fyrir að flokkurinn sé þverklofinn. „Ég hef verið spurður að því í hálfkæringi í hvora deildina ég ætla að ganga, órólegu deildina eða hina. Ég þarf nú bara að gá að því hvað er hæft í þeim fullyrðingum að í þessum flokki séu tveir deildir en það er þarna greinilega mjög lifandi umræða og tekist á um mál af sannfæringu og ástríðu.“

kristjana@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.