Heimsókn Jóhönnu hefur fengið margvísleg viðbrögð. Gerhard Lognberg (á mynd) tjáði sig um málið í gærkvöldi. samsett mynd
John Johannessen, þingflokksformaður Jafnaðarflokksins í Færeyjum, segir að skoðanir Gerhard Lognberg endurspegli ekki skoðanir flokksins. Lognberg tjáði sig við færeyska fjölmiðla í gærkvöldi þar sem hann lýsti vanþóknun sinni á að Jóhanna Sigurðardóttir hafi komið í opinbera heimsókn til landsins með eiginkonu sinni.
„Skoðanir Lognberg endurspegla ekki skoðanir flokksins og Jóhanna og Jónína eru afar velkomnar til Færeyja,“ segir Johannessen í svari við fyrirspurn DV um málið. Hann kveðst sjálfur hafa setið kvöldverð með þeim og haft gaman af.
„Ég, sem og flokkurinn, viljum ekkert með ummæli Lognberg hafa og þessi afstaða þingmannsins verður rædd á fundi flokksforystunnar í kvöld,“ segir Johannessen.
Aðspurður segir hann fordóma gagnvart samkynhneigðum vera stórt vandamál í Færeyjum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
