ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Herra hinseginn miður sín yfir fordómum Færeyinga

23:30 › 8. september 2010
Vilhjálmur Þór segir sorglegt þegar menn réttlæta eigin fordóma með því að vitna í Biblíuna.

Vilhjálmur Þór segir sorglegt þegar menn réttlæta eigin fordóma með því að vitna í Biblíuna.

„Ég er nú bara miður mín og á ekki eitt einasta orð,“ segir Vilhjálmur Þór Davíðsson, herra hinsegin 2010, um færeyska þingmanninn Jenis av Rana sem neitaði að hitta Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og eiginkonu hennar þar sem heimsókn þeirra væri ögrun við Færeyinga og bókstaf Biblíunnar.

„Þetta eru ótrúlega gamaldags sjónarmið og ég vona að það sé afskaplega lítill minnihlutahópur í Færeyjum sem hafi þessa skoðun,“ segir Vilhjálmur Þór og bætir við að hann vonist til þess að ummælin verði til þess að Færeyingar taki sig á í málefnum samkynhneigðra.

„Það er voðalega skrítið að á meðan við hér á Íslandi erum komin langt í réttindabaráttunni eru þessi frændur okkar og nágrannar svona langt úti á sjó með þetta. Við verðum bara að hjálpa þeim að sjá ljósið í þessum málum.“

Þingmaðurinn Jenis er formaður Miðflokksins sem hefur það á stefnuskrá sinni að Færeyjum verði stjórnað eftir lögum Biblíunnar. Vilhjálmur Þór segir trú manna alltaf viðkvæma en að honum litist ekki á veröldina ef við lifðum algjörlega eftir því sem stæði í Biblíunni. „Ég er ágætlega trúaður sjálfur en mér finnst sorglegt þegar fólk réttlætir eigin fordóma með því að vitna í Biblíuna.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.