ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Foreldrar vændiskonunnar biðja Coleen afsökunar

12:43 › 8. september 2010
Wayne og Coleen Rooney munu hittast í dag og ræða framtíð hjónabandsins.

Wayne og Coleen Rooney munu hittast í dag og ræða framtíð hjónabandsins.

Foreldrar vændiskonunnar Jennifer Thompson hafa beðið Coleen Rooney, eiginkonu Waynes Rooney, opinberlega afsökunar á framkomu dóttur sinnar. Hamish og Dana Thompson segjast hafa verið slegin yfir framferði 21 árs gamallar dóttur sinnar eftir að frá því var greint á sunnudaginn að hún hefði selt knattspyrnukappanum blíðu sína á meðan Coleen var ólétt af fyrsta barni þeirra hjóna.

„Vegna fjölmargra blaðagreina um dóttur okkar Jennifer viljum við biðja Coleen Rooney og fjölskyldu hennar innilega afsökunar. Þetta kann að hljóma innantómt en ég og eiginkona mín myndum aldrei leggja blessun okkar yfir það sem kann að hafa, eða á að hafa gerst,“ segja þau hjónin í yfirlýsingu sinni.

„Okkur grunaði þetta aldrei.“

Af Rooney-hjónunum er það að frétta að Coleen hefur samþykkt að hitta Wayne á „krísufundi“ varðandi hjónaband þeirra. Vinir hjónanna hafa sagt í breskum fjölmiðlum í dag að framtíð hjónabandsins muni ráðast eftir að þau hittast í fyrsta skipti síðan ásakanirnar komu fram.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?