„Ég er nú ekki boðinn til þessa kvöldverðar en ég verð að segja að ég efast stórlega um að ég hefði þáð boðið væri ég formaður Jafnaðarflokksins,“ segir Gerhard Lognberg, þingmaður flokksins, um heimsókn Jóhönnu Sigurðardóttir. Hann er enn einn kjörni fulltrúinn í landinu sem sýnir af sér fordóma gagnvart íslenska forsætisráðherranum vegna opinberrar heimsóknar hennar. Eins og flestir vita er eiginkona Jóhönnu, Jónína Leósdóttir, með henni í för.
Gerhard segir við færeyska fréttamiðilinn Norðurljósið að lögmaður Færeyja Kaj Leo Johannesen og Hogni Hoydal formaður Þjóðveldisflokksins séu á rangri leið og skilur ekki að þeir skammi þá sem vilji ekki samþykkja lifnaðarhætti samkynhneigðra.
Eins og fram hefur komið hefur formaður Miðflokksins Jenis av Rana lýst yfir vanþóknun sinni á kynhneigð Jóhönnu og neitaði hann að sitja kvöldverðarboð með henni og Jónínu. Þingmaður Sambandsflokksins Alfred Olsen tók undir með honum og nú Lognberg.
„Ég hef ekkert á móti íslenska forsætisráðherranum og hún er hjartanlega velkomin til Færeyja, en að koma hér með samkynhneigðan maka sinn, það lít ég á sem vísvitandi ögrun,“ er haft eftir Lognberg í færeyska fréttamiðlinum í gærkvöldi.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
