„Fyrst kynhneigð forsætisráðherra er svona mikið atriði í Færeyjum að þá vonum við bara það að sú staðreynd að hún hafi verið þarna sem forsætisráðherra Íslands ásamt eiginkonu sinni hafi verið stuðningur við samkynhneigða í Færeyjum,“ segir Árni Svanur Daníelsson, prestur og upplýsingafulltrúi Biskupsstofu.
Jenis av Rana vildi ekki taka þátt í kvöldverðarboði sem lögmaður færeyja hélt til heiðurs Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra þar sem Jóhanna sé samkynhneigð. Árni segir að það sé ljóst að tilvitnanir Jenisar í biblíuna yrðu ekki notaðar gegn samkynhneigðum í þjóðkirkjunni á Íslandi í dag.
„Í gegnum niðurstöðu kenningarnefndar kirkjunnar, sem fjölluðu um þessa texta og fleira, er það afstaða kirkjunnar að þeir eigi ekki við í dag. Þeir fjalla um fornan átrúnað en að þeir eiga ekki við um samkynhneigð í samtímanum og þeir eiga ekki við um samvist eða hjónaband samkynhneigðra,“ segir Árni.
Biskupsstofa: Rök Jenisar úr biblíunni eiga ekki við
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Tengt: Fordómar í Færeyjum
- 8. september 2010
Aðeins þrír af sex flokksformönnum mættu í kvöldverðinn - 8. september 2010
Lognberg kallaður á teppið fyrir ummæli um Jóhönnu - 8. september 2010
Fordómarnir flæða af vörum færeyskra þingmanna - 7. september 2010
Annar þingmaður: Jóhanna stríðir gegn náttúrunni - 7. september 2010
Katrín Jakobsdóttir: Þessu erum við ekki vön
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
