ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Biskupsmálið: „Ég hélt þessu leyndu fyrir öllum“

09:30 › 8. september 2010
Vigfús sagðist hafa haldið vitneskjunni um brot Ólafs biskups leyndri fyrir öllum.

Vigfús sagðist hafa haldið vitneskjunni um brot Ólafs biskups leyndri fyrir öllum.

Í skýrslutöku hjá lögreglunni árið 1996 sagði Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, að hann hefði tekið á móti Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og hlustað á hana en það væri ekki það sama og að trúa því sem sagt hefði verið. Þetta kemur fram í lögregluskýrslu sem DV hefur undir höndum.

Orðrétt er haft eftir Vigfúsi Þór í lögregluskýrslunni: „Ég hlustaði á hana og leit þannig á að hún væri fyrst og fremst að létta af sér byrði. Ég tek það fram, í tilefni af því að ég hef séð haft eftir henni í fjölmiðlum að ég hafi sagt að ég tryði henni, að það að hlusta á einstakling í sálusorgarviðtali er ekki það sama og trúa því sem skjólstæðingurinn setur fram. Fyrsta, önnur og þriðja regla okkar presta í sálusorgun er að hlusta og það var það sem ég var að gera í þetta sinn. Niðurstaða viðtalsins var í raun engin. Sigrún Pálína bað mig reyndar að tala við presta um þetta í þeim tilgangi að Ólafur Skúlason hætti sem biskup og sagði að hann mætti ekki vera í því embætti vegna þessa máls. Ég tók ekki að mér að gera eitt né neitt en ég man að ég minnti Sigrúnu Pálínu á þagnarskyldu mína sem prestur og að ég gæti ekki borið ósannaðar upplýsingar út um fólk. Hins vegar mótmælti ég ekki því sem hún var að segja enda deilir prestur ekki við þann sem hann er með í sálusorgun um sannleiksgildi fullyrðinga hans. Varðandi þessar tilteknu fullyrðingar hennar í samtalinu sagði ég henni að hér væri orð á móti orði.“

Þá var Vigfús spurður hvað hann hafi gert með þessa vitneskju. „Ég hélt þessu leyndu fyrir öllum og ræddi þetta ekki við nokkurn mann, enda þessar ásakanir ósannaðar og mjög alvarlegar.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?