ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Aðeins þrír af sex flokksformönnum mættu í kvöldverðinn

13:52 › 8. september 2010
Það fór vel á með Jóhönnu og John Johannesen, þingflokksformanni Jafnaðarflokksins, í gær.

Það fór vel á með Jóhönnu og John Johannesen, þingflokksformanni Jafnaðarflokksins, í gær. Mynd: Páll Nolsøe

Aðeins þrír af sex formönnum stjórnmálaflokkanna í Færeyjum sáu sér fært að mæta í kvöldverðinn með Jóhönnu Sigurðardóttur og eiginkonu hennar sem haldinn var í Kirkjubø í gærkvöldi. Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, bauð öllum formönnum stjórnmálaflokkanna.

Johannesen er formaður Sambandsflokksins en auk hans voru Hogni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins, og John Johannesen, þingflokksformaður Jafnaðarflokksins mættir.

Fjarverandi voru eins og kunnugt er Jenis av Rana, formaður Miðflokksins, sem hafði lýst því yfir að hann myndi ekki mæta vegna fordóma sinna gagnvart samkynhneigðum. Kári P. Hojgaard, formaður Sjálfstýrisflokksins og Jorgen Niclasen mættu heldur ekki.

Niclasen, formaður Fólkaflokksins, segir reyndar í samtali við færeyska fjölmiðla að hann hafi ómögulega getað mætt þar sem hann hafi átt að vera viðstaddur annað pólitískt kvöldverðarboð í gærkvöldi. Hann kveðst hafa afboðað sig hjá skrifstofu lögmannsins og spurt hvort hann ætti að senda annan í sinn stað en engin svör fengið. Niclasen tekur fyrir það að fjarvera fulltrúa Fólkaflokksins hafi verið einhverskonar mótmæli við komu Jóhönnu og Jónínu. Hann hefði mætt ef hann hefði getað.

Fréttasíðan Portal.fo náði ekki í Kára Hojgaard vegna málsins.

Aukið samstarf við Færeyjar:
En Jóhanna gerði meira en bara að snæða kvöldverð með stjórnmálamönnum og sitja undir fordómum vegna kynhneigðar sinnar frá einstaka þingmönnum í Færeyjum. Forsætisráðherra og Kaj Leo Johannessen funduðu í dag og undirrituðu við það tækifæri viljayfirlýsingu um aukið samstarf forsætisráðuneytanna. Samstarfið tekur einkum til jafnréttismála og verkefna varðandi breytingar og þróun í stjórnsýslunni og ráðuneytum.

Ráðherrar færeysku ríkisstjórnarinnar áttu jafnframt fund með forsætisráðherra í morgun og kynnti forsætisráðherra þeim meðal annars stöðu efnahagsmála, jafnréttismál og fyrirhugað stjórnlagaþing.

Forsætisráðherra og lögmaður ræddu ennfremur aukið samstarf landanna á sviði jafnréttismála, aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, tvíhliða samstarf og fyrirhugaðar breytingar á stjórnarráði Íslands.

Jóhanna og Kaj Leo heimsóttu í gær Norðurlandahúsið, Listasafn Færeyja og Þjóðminjasafn Færeyja. Lögmaður hélt forsætisráðherra kvöldverð í Kirkjubæ, sem hefur mikið menningarsögulegt gildi í Færeyjum.

Heimsóknin til Færeyja var fyrsta opinbera heimsókn forsætisráðherra frá því að hún tók við embætti. Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag þakkaði forsætisráðherra færeyska lögmanninum sérstaklega vel fyrir móttökurnar og lagði áherslu á það góða og trausta samband sem hefði verið og yrði áfram á milli þjóðanna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?