Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda(SFÚ) lýsa yfir eindregnum stuðningi við tilboðsleiðina sem þeir Þorkell Helgason og Jón Steinsson lögðu fram. Ef að samningaleiðin verði hinsvegar farin vilja samtökin að rannsakað verði hvaða þjóðhagsleg áhrif hvor leið fyrir sig hefur, meðal annars hvaða áhrif þær hafa á tekjur ríkissjóðs. Samtökin skora á stjórnvöld að leggja samningaleiðina og tilboðsleiðina fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu.
Samtökin vilja einnig að kannað verði þjóðhagsleg áhrif þess að bannað verði að senda óunninn og óvigtaðan fisk úr landi óseldan og að allur afli verði þess í stað seldur á innlendum fiskmarkaði þar sem erlendir aðilar geti stofnað ábyrgðir og keypt fisk. Eins vilja samtökin að kannað verði hvaða áhrif það hefði ef verðlagsstofa yrði lögð niður og markaðsverð yrði látið ráða í beinum viðskiptum með fisk.
Vilja að þjóðin velji hvaða leið eigi að fara
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir