ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Skoska biskupakirkjan gerir almættið kynlaust

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:00 › 7. september 2010
Sumir segja endurbæturnar pólitíska rétthugsun, en aðrir segja þær lýsa betur hinu dularfulla guðshugtaki.

Sumir segja endurbæturnar pólitíska rétthugsun, en aðrir segja þær lýsa betur hinu dularfulla guðshugtaki.

Skoska biskupakirkjan hefur breytt textum sem notaðir eru í helgiathöfnum. Þá er öllum tilvísunum um kyn almættisins eytt, og önnur kynlaus orð kynnt til sögunnar. Biskupakirkjan segir þetta gert vegna þess að Guð sé yfir mannlegt kyn hafið, og að verið sé að bjóða prestum upp á öðruvísi texta sem hægt er að nýta í helgiathöfnum. Þeir sem kjósa fremur gömlu textana geta þó notað þá við helgiathafnir áfram.

Í nýju útgáfunni er til dæmis nafnið á hinni heilögu þrenningu endurbætt. Þá er „Faðir, sonur og heilagur andi“ endurþýtt í textanum sem „Skapari, frelsari og blessari.“ Einnig er orðinu „mannkyn“ skipt út fyrir orðið „heimurinn.“

Séra Darren McFarland er formaður nefndar helgisiða í kirkjunni, en hann segir að beinum tilvitnunum í biblíuna verði ekki breytt, enda sé þar um orð Guðs að ræða. Ennfremur segir hann textunum breytt til að lýsa almættinu betur.

„Við erum ekki að segja að Guð sé ekki karlkyns. Guð er einnig kvenkyns. Vandamálið myndast þegar við reynum að nota mannlegt tungumál til þess lýsa hinu ólýsanlega.“ Segir séra McFarland. Með breytingunum er einnig verið að koma til móts við kvenkyns presta, en haft var orð á því í umræðum í kirkjunni að skringilegt væri að enn sé talað um Guð í karlkyni.

Það eru þó ekki allir sammála breytingunum, og sumir segja þetta ekkert annað en pólitíska rétthugsun sem eigi engan stað í kirkjunni. Þá er einnig bent á að testamentin tvö séu troðfull af tilvísunum til karlkyns Guðs, og því séu endurbætur af þessu tagi mörgum vandkvæðum háðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.