ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Sautján teknir fyrir lyfja eða ölvunarakstur um helgina

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:46 › 7. september 2010

Sjö ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna um helgina. Allt voru þetta karlar og eru þeir allir á þrítugsaldri. Tveir þeirra reyndust vera próflausir, annar hafði verið sviptur ökuréttindum en hinn hafði aldrei öðlast þau.

Tíu ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu voru stöðvaðir í Reykjavík en einn í Kópavogi. Sjö karlar á aldrinum 18 til 49 voru teknir og þrjár konur sem allar eru á þrítugsaldri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.