ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Samningaleiðin valin – fyrningarleiðinni hafnað

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
12:29 › 7. september 2010

Einar K. Guðfinnsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í endurskoðunarnefnd um fiskveiðistefnuna, segir það niðurstöðu nefndarinnar að fara svokallaða samningaleið. Samningaleiðin felur í sér að gera samninga við þá aðila sem þegar eiga kvóta um leigu á þeim kvóta. Með samningaleiðinni er fyrningarleiðinni hafnað.

Einar K. segir í bókun sem hann sendi á fjölmiðla að leggja þurfi sérstaka áherslu á að samningarnir verði til langs tíma. „Mjög mikilvægt er að samningarnir verði til langs tíma, rétt eins og gilda mun við nýtingu orkuauðlinda sem ekki eru í einkaeigu,“ segir í bókuninni.

„Framundan er margs konar fjárfestingarþörf í sjávarútveginum. Ljóst er að ef einhver óvissa verður varðandi tímalengd samninganna um fiskveiðiréttinn eða endurnýjun þeirra, mun það bitna harðast á nýliðum og veikari fyrirtækjum, draga mjög úr vilja til fjárfestinga og þar með framförum,“ segir Einar.

Einar fagnar þessari niðurstöðu en segir jafnframt að stjórnvöld eigi að virða niðurstöðuna og standa að því samkomulagi sem náðist með þessum hætti í nefndinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.