ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Óttast endalok eftirlauna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:45 › 7. september 2010
Átta prósent aðspurðra töldu að þau myndu aldrei fara á eftirlaun.

Átta prósent aðspurðra töldu að þau myndu aldrei fara á eftirlaun.

Um þriðjungur aðspurðra í Bretlandi telja að eftirlaun verði með breyttu sniði í framtíðinni. Þá töldu flestir að eftirlaunakjör þeirra sem ungir eru í dag verði rýrari heldur en kjör núverandi ellilífeyrisþega.

Þetta kemur fram í könnun sem BBC fréttastofa framkvæmdi. Þá kemur einnig fram í sömu könnun að af þeim 1000 sem spurðir voru, þá hafi um 700 verið á þeirri skoðun að ekki væri hyggilegt að lifa á eftirlaunum í 30 ár eða minna.

Þá hafði svipað hlutfall aðspurðra áhyggjur af því að kjör þeirra yrðu verri en þau kysu, og að fjármagn þeirra yrði of lítið til þess að lifa ákjósanlegu lífi.

Rúmlega þrír fjórðu trúðu því að ungt fólk myndi þurfa að sætta sig við verri eftirlaunakjör en ellilífeyrisþegar hafa í dag. Átta prósent voru á þeirri skoðun að þau myndu líklegast aldrei fara á eftirlaun.

Í október á næsta ári hyggst Breska þingið afnema 65 ára eftirlaunaaldurinn í landinu, sem gerir borgurum landsins kleift að vinna eftir þann aldur. Þetta er gert til þess að hvetja fólk til að vinna lengur, og auka þar með tekjur ríkisins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.