ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Nemendur á Facebook standa sig verr í prófum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:52 › 7. september 2010
Facebook stelur dýrmætum tíma af nemendum, samkvæmt nýrri rannsókn.

Facebook stelur dýrmætum tíma af nemendum, samkvæmt nýrri rannsókn.

Nemendur sem eyða tíma á Facebook samskiptasíðunni á meðan að þeir læra fá að meðaltali 20 prósent lægri einkunn en þeir sem gera það ekki, samkvæmt nýrri hollenskri rannsókn.

Þá kom fram að þeir sem skoðuðu síðuna einungis af og til náðu samt lakari árangri heldur en samnemendur þeirra sem gerðu það ekki. Þrír af þeim fjórum sem skoðuðu síðuna á meðan að á lærdóm stóð töldu þó ekki að það hefði slæm áhrif á námsárangur þeirra.

Samkvæmt Paul Kirschner, prófessornum sem framkvæmdi rannsóknina, stangast niðurstöðurnar á við þá trú að hægt sé að koma meira í verk með því að vinna í fleiri hlutum í einu í tölvunni. Það segir hann auka tímann sem eyða þarf í hvert verkefni fyrir sig, jafnframt sem það eykur líkurnar á mistökum.

Þá leiddi könnunin einnig í ljós að þeir sem að vöfruðu ekki á Facebook á meðan að þeir lærðu eyddu að meðaltali um 88 prósent meiri tíma við það að læra utan kennslustunda heldur en aðrir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.