ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Myrt fyrir að hrópa rangt nafn í kynlífi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:46 › 7. september 2010
Gary stakk Joanne tvisvar og kyrkti með rafmagnssnúru, vegna þess að hún hrópaði rangt nafn er þau stunduðu kynlíf.

Gary stakk Joanne tvisvar og kyrkti með rafmagnssnúru, vegna þess að hún hrópaði rangt nafn er þau stunduðu kynlíf.

Hinn 44 ára gamli Gary Higgs myrti kærustuna sína, vegna þess að hún kallaði út rangt nafn er þau stunduðu kynlíf. Hann strunsaði úr svefnherberginu og náði í langan eldhúshníf, stakk hana tvisvar og kyrkti hana með rafmagnssnúru.

Higgs hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsisvist fyrir ódæðið, en hann sagði við lögregluna að hann hefði ekki vitað hvað gekk á í huga sínum þegar hann framdi morðið. Dómarinn í málinu sagði að samband þeirra hefði verið hrjáð af fjárhagslegum áhyggjum og streitu.

Nafnið sem Joanne Kitchen hrópaði var „Chris“ en þegar Gary reiddist og spurði hana af hverju hún hafi hrópað það nafn, þá gaf hún þá útskýringu að hún hlyti að hafa verið að hugsa um kærasta dóttur sinnar.

Hún sagði að hann hafi verið í heimsókn daginn áður, og því hlyti hugurinn að hafa beinst að honum. En Gary trúði ekki þeirri skýringu, heldur sagðist hann ætla að kemba vinahóp hennar á Facebook, í leit að einhverjum sem héti Chris.

En áður en hann gerði það, greip hann eldhúshníf og hrópaði á hana hvað væri í gangi. Þegar hún svaraði ekki, þá stakk hann Joanne í bakið er hún lá í rúminu. Hún sneri sér við, og þá stakk hann hana aftur í brjóstkassann. Það eina sem Joanne gat sagt áður en hann kyrkti hana til bana var „Þú drapst mig.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.