ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Morðingi Lennon áfram í fangelsi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:40 › 7. september 2010
Mark Chapman bað John Lennon um eiginhandaráritun hinn 8. desember árið 1980, en skaut hann svo fjórum sinnum í bakið og öxlina.

Mark Chapman bað John Lennon um eiginhandaráritun hinn 8. desember árið 1980, en skaut hann svo fjórum sinnum í bakið og öxlina.

Morðingja bítilsins John Lennon hefur verið neitað um skilorðslausn í sjötta skiptið. Hann mun því sitja í fangelsi að minnsta kosti í tvö ár til viðbótar.

Hinn 55 ára gamli Mark David Chapman var dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 1981 með möguleika á reynslulausn eftir 20 ár. En honum hefur verið neitað um reynslulausn sex sinnum síðan þá.

Nefndin sem úrskurðaði um málið sagði að enn væru áhyggjur um hið siðferðislega sinnuleysi sem Chapman sýndi, þegar hann ferðaðist til New York-borgar eingöngu til þess að myrða Lennon. Þá taldi nefndin að honum hafi ekki tekist að sýna fram á virðingu fyrir félagslegum gildum þegar hann sótti um reynslulausn.

Chapman myrti Lennon árið 1980, er hinn seinni var á leið heim til sín nálægt Central Park í New York-borg. Þá bað Chapman fyrst Lennon um eiginhandaráritun, en skaut hann svo fjórum sinnum í bakið og öxlina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.